Tilkynning um utandagskrárumræðu

94. fundur
Miðvikudaginn 06. janúar 1993, kl. 13:35:48 (4364)

     Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
    Það hefur borist beiðni um utandagskrárumræðu kl. 15.30 í dag. Það er hv. 4. þm. Norðurl. e. sem hefur óskað eftir umræðunni. Hann óskar að ræða um brottvísun Palestínumanna af hernumdu svæðunum í Ísrael. Þessi umræða fer fram samkvæmt fyrri málsgr. 50. gr. þingskapa og stendur því í hálfa klukkustund.