Rannveig Guðmundsdóttir
:
Virðulegi forseti. Alþfl. hefur frá öndverðu stutt og unnið að framgangi þessa mikilvæga máls sem að mínu mati felur ekki í sér brot á stjórnarskrá né rýrir sjálfstæði okkar Íslendinga. Í utanrmn. hefur farið fram gaumgæfileg athugun á EES-samningnum og þeim skyldum og réttindum sem honum fylgja fyrir okkur Íslendinga. Málið kom fyrir á yfir 80 fundum nefndarinnar frá því að könnunarviðræður hófust í apríl 1989. Eftir þessa ítarlegu umfjöllun var það eindregin niðurstaða meiri hluta utanrmn., sem ég er aðili að, að það sé íslenskum hagsmunum ótvírætt til framdráttar að Ísland gerist aðili að samningnum. Ég tel það afar mikilvægt, ekki síst með tilliti til stöðunnar í efnahags- og atvinnulífi okkar að við fáum aðild að þeim 380 milljón manna markaði sem EFTA-ríkin og Evrópubandalagið mynda með samningi sínum um Evrópska efnahagssvæðið.
Ég lít á aðild okkar að EES sem varanlegan valkost við Evrópubandalagið, sem góðan kost, og segi já.