Evrópskt efnahagssvæði

97. fundur
Föstudaginn 08. janúar 1993, kl. 18:53:22 (4532)

     Forseti (Pálmi Jónsson) :
    Forseti vill upplýsa að á fundi forsætisnefndar í gær var rætt um þann möguleika að fundur yrði á morgun, laugardag. Því var þá andmælt af hv. 15. þm. Reykv. sem hefur tilgreint ástæður sínar og málið var þá eigi tekið til afgreiðslu og ekkert ákveðið. Sú ákvörðun sem forseti hefur síðar tekið er tekin í kjölfar funda með formönnum þingflokka ef ég hef skilið það rétt.