Samningar við EB um fiskveiðimál

99. fundur
Mánudaginn 11. janúar 1993, kl. 10:40:57 (4618)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Forseti vill geta þess að það vakir ekki fyrir henni að ljúka þessari umræðu heldur aðeins að nýta tímann og það verður að sjálfsögðu tekið tillit til þess að þeir hv. þm., sem eru á mælendaskrá og eru ekki komnir, fái tækifæri til að flytja sitt mál þannig að umræðunni verður alls ekki lokið fyrr en við sjáum fyrir hvenær hv. þm. koma. Það er aðeins verið að nýta tímann og byrja þessa umræðu og vonar nú forseti að það verði tekið tillit til þessa.