Samningar við EB um fiskveiðimál

100. fundur
Þriðjudaginn 12. janúar 1993, kl. 12:05:07 (4667)

     Halldór Ásgrímsson (andsvar) :
    Virðulegur forseti. Ég tel að hv. 1. þm. Vestf. hafi staðfest að hann telur ólíklegt að þessum afla, ef hann verður veiddur af íslenskum skipum, verði landað eingöngu innan lands. Hann telur það líklegast að hluta hans yrði landað erlendis og hluti hans yrði frystur úti á sjó. Það er einmitt það sem ég hef verið að halda fram og ég hef engar athugasemdir við það að gera. Síðan verður að sjálfsögðu að taka tillit til þess hvaða möguleikar eru á því að þessi loðna nýtist okkur með einum eða öðrum hætti.
    Þetta eru tvö aðalatriði málsins og ég tel að það hafi komið fram í svari hv. þm. að hann viðurkennir þessar staðreyndir, enda verður þeim ekki mótmælt með neinum þeim hætti að trúverðugt sé. Þetta eru einfaldlega staðreyndir af okkar reynslu í þessum málum og þess vegna tel ég að þetta andsvar hans hafi í reynd staðfest að hér er ekki um neinar jafngildar veiðiheimildir að ræða.