Evrópskt efnahagssvæði

100. fundur
Þriðjudaginn 12. janúar 1993, kl. 15:02:39 (4699)

     Hjörleifur Guttormsson :
    Virðulegi forseti. Enginn frágenginn EES-samningur liggur fyrir af hálfu Evrópubandalagsins og EFTA-ríkja. Eftir að meiri hluti svissneskra kjósenda felldi samninginn hafa önnur EFTA-ríki og Spánn krafist endurskoðunar á greiðslum í sérstakan þróunarsjóð fyrir Evrópubandalagið. Þing níu EB-ríkja höfðu ekki staðfest samninginn þegar Sviss felldi hann og bíða þau nú átekta. Engum nema íslensku ríkisstjórninni dettur í hug að láta lögfesta ófrágengið mál. Framkvæmdastjórnin í Brussel hefur enn ekkert samningsumboð. Það ræðst í fyrsta lagi í febrúarbyrjun hvort hún fær slíkt umboð og þá fyrst gætu samningaumleitanir hafist. Það eru öfugmæli í Bakkabræðrastíl að andstæðingar samningsins hér á Alþingi hafi tafið framgang EES-samnings sem er ekki fyrir liggjandi. Látum nú Viðeyjarbræður í ríkisstjórninni fá þetta óbermi til baka. Ég segi já.