Evrópskt efnahagssvæði

100. fundur
Þriðjudaginn 12. janúar 1993, kl. 15:05:47 (4701)

     Kristín Einarsdóttir :
    Frú forseti. Eftir að Sviss hafnaði aðild að Evrópsku efnahagssvæði er ljóst að fyrirliggjandi samningur nær ekki óbreyttur fram að ganga. Réttast væri að vísa málinu frá fyrir fullt og allt. Með þessari till. er frv. vísað til föðurhúsanna. Ég segi því já.