Forseti (Salome Þorkelsdóttir)
:
Í tilefni orða hv. 4. þm. Reykv. vill forseti taka fram að frv. hefur hlotið þinglega meðferð. Umræðum við 3. umr. er lokið og atkvæðagreiðsla hafin. Eins og kom fram í orðum hæstv. forsrh. er ekki grundvöllur til frekari viðræðna um þetta mál og því telur forseti rétt að atkvæðagreiðslan um frv. í heild fari fram og hefst nú atkvæðagreiðslan.