Evrópskt efnahagssvæði

100. fundur
Þriðjudaginn 12. janúar 1993, kl. 15:22:12 (4713)

     María E. Ingvadóttir :
    Hæstv. forseti. Það þarf þor, kjark og framsýni til að vinna að samningi sem þeim er hér um ræðir og það er mikil ábyrgð samfara því að samþykkja samning um Evrópskt efnahagssvæði. Með þori, framsýni og ábyrgum vinnubrögðum verða framfarir og ég tel þennan samning auðvelda þá leið. Ég segi já.