Framleiðsla og sala á búvörum

102. fundur
Fimmtudaginn 14. janúar 1993, kl. 14:40:27 (4844)

     Jóhannes Geir Sigurgeirsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að hafa miklu fleiri orð um þetta og engin efnisleg en ég ætla bara að leiðrétta ef sá leiði misskilningur hefur slæðst inn til hv. 1. þm. Norðurl. v. með þessu frv., eins og reyndar mátti skilja af ræðu hans áðan, að með því ætti að afleggja fulltrúafundi og skoðanaskipti innan Stéttarsambands bænda. Það er alls ekki. Þeir munu áfram verða haldnir árlega og stundum oftar eins og verið hefur og munu gegna sínu hlutverki hér eftir sem hingað til. Þetta eina litla mál er ekki nema sáralítið af því sem þar er rætt um.