Grunnskóli

103. fundur
Fimmtudaginn 14. janúar 1993, kl. 19:42:10 (4890)

     Kristín Ástgeirsdóttir :
    Virðulegi forseti. Verði þetta frv. að lögum verður fram haldið sveltistefnu gagnvart skólakerfinu í landinu. Kennsla verður áfram skorin niður. Heimilt er að hafa bekki með allt að 30 nemendum. Frestað er ákvæðum um að koma á fót athvörfum fyrir börn og því er frestað að koma á máltíðum í skólum. Þetta er vond stefna, þetta er stefna sem bitnar á börnum, fjölskyldum og framtíð þjóðarinnar. Ég segi nei.