Frestun á fundum Alþingis

103. fundur
Fimmtudaginn 14. janúar 1993, kl. 20:02:18 (4901)

     Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) :
    Virðulegi forseti. Skilningur þingmannsins var réttur enda hann einkar skynugur og skýr maður. En vegna þess sem hann nefndi um bráðabirgðalögin þá er bráðabirgðalagarétturinn tryggður í stjórnarskrá og þingsköp geta ekki takmarkað þann rétt á neinn hátt sem stjórnarskráin veitir. ( PP: Það er óþarfi að beita honum.)