Forseti (Salome Þorkelsdóttir)
:
Nú er komið að lokum þessarar fundarlotu með því að afgreidd hafa verið þau mál sem samkomulag var um að ljúka. Ég vil af því tilefni óska þingmönnum öllum góðrar heimferðar og vonast til að það hlé, sem nú verður gert á fundum Alþingis, nýtist vel til að sinna þeim margvíslegu verkefnum sem þingmannsstarfinu fylgja. Við sjáumst heil að þinghléinu loknu þann 10. febr. nk.