Tómas Ingi Olrich
:
Virðulegur forseti. Hér er í till. til þál. hreyft mikilvægu málefni sem snertir atvinnuþróun í Mývatnssveit. Mývatnssveit er eins og allir vita mjög sérstætt svæði og náttúruverndarmál þar mikilvægari en nokkurs staðar annars staðar á landinu. Náttúra landsins á þessu svæði er nýtt til atvinnuuppbyggingar í mjög ríkum mæli. Þar er rekin ferðaþjónusta sem byggir fyrst og fremst á þeim náttúrugæðum sem þar er að finna. Þessi tillaga snertir annars vegar þessi þróunarmál almennt, það er að segja náttúru landsins og nýtingu náttúrunnar til atvinnusköpunar og hins vegar starfsemi Kísilgúrverksmiðjunnar sem hefur verið uppspretta atvinnu þar um langan tíma en er nú í mikilli óvissu.
Um leið og ég lýsi því yfir að ég fagna þessari tillögu og styð hana þá legg ég áherslu á að unnið verði að því eins hratt og mögulegt er að eyða óvissu um starfsemi Kísilgúrverksmiðjunnar því að starfsemi hennar er mjög mikilvægt fyrir samfélagið við Mývatn og öll óvissa um starfsemi fyrirtækisins skaðar það mjög mikið og er þegar farin að gera það.
Það er að sjálfsögðu mjög mikilvægt að allri óvissu um áhrif á náttúruvernd á þessu svæði verði einnig eytt. Að öðru leyti held ég að þessi tillaga gæti verið gott framlag til þess að fjalla almennt um þróun ferðamála og nýtingu náttúrunnar sem uppsprettu atvinnu á Íslandi. Ég held að sá tími sé liðinn að við getum látið okkur nægja að líta á náttúruna sem auðlind sem við getum nýtt nánast skipulagslaust. Ég held að það séu þó nokkuð miklir möguleikar á því að beina nýtingu náttúruauðlinda á Íslandi fyrir ferðaþjónustu í fastari farveg. Taka á þeim málum í ljósi þess að þessar náttúruauðlindir eru ekki óþrjótandi. Meðferð þeirra skiptir miklu máli um hversu varanleg auðlind þetta getur orðið okkur. Það er nauðsynlegt að huga að því nú þegar hvernig við getum beint nýtingu þessarar auðlindar inn í þann farveg að einmitt á sviði ferðamála verði sjálfbær þróun, að ekki verði gengið á þær auðlindir sem náttúra landsins er.