Eftirlit Landhelgisgæslunnar innan 200 sjómílna efnahagslögsögunnar

105. fundur
Miðvikudaginn 10. febrúar 1993, kl. 15:13:52 (4928)

     Flm. (Guðmundur Hallvarðsson) :
    Virðulegi forseti. Upptalning hv. 1. þm. Vestf. á starfsemi Landhelgisgæslunnar hefur eflaust ekki farið fram hjá neinum, bæði þeim verkefnum sem hún sinnir nú þegar og þeirri þjónustu við land og þjóð sem við sjáum að verði í framtíðinni lögð á herðar Landhelgisgæslunnar. Það er kannski líka rétt að undirstrika eitt. Það er sú mikla aðstoð sem Landhelgisgæslan hefur veitt hinni dreifðu byggð þá veður eru válynd og náttúruhamfarir hafa orðið. Enn fremur hefur hún flutt fólk á milli hinna dreifðu byggða hvar samgöngur hafa nánast legið niðri nema sjóleiðin ein hefur verið valkostur fyrir fólk til að komast milli byggðarlaga hvort sem er vegna veikinda eða af öðrum ástæðum.
    Fyrir hönd okkar flm. þakka ég öllum þeim sem hér hafa tekið til máls og þakka fyrir jákvæðar

undirtektir við tillögu okkar. Ég er þess fullviss að þingheimur gerir sér grein fyrir mikilvægi Landhelgisgæslunnar og þess að hún megi eflast og dafna og sinna þeim verkefnum sem við ætlumst til að hún sé reiðubúin til á hverjum tíma.
    Ég legg til, virðulegi forseti, að þessari þáltill. verði vísað til allshn., en tel ekki óeðlilegt að hún komi einnig til sjútvn. og utanrmn.