Fyrirspyrjandi (Guðni Ágústsson)
:
Hæstv. forseti. Ég þakka dómsmrh. þetta snaggaralega svar. Það er ekki eðlilegt að ískalt dómsvaldið leggi út af svona tölu. En ég býst við að ástæða sé til að ræða þetta mál við hæstv. félmrh. og að taka þurfi málið upp á Alþingi. Þarna er um verulega fækkun að ræða frá fyrri árum. En eins og ég nefndi er full ástæða til að kanna hina hliðina við breytinguna, þ.e. hversu mörg fjárnám hafa farið fram án árangurs og ræða hvernig megi afstýra fjárhagslegu gjaldþroti yngra fólksins í landinu.