Forseti (Guðrún Helgadóttir)
:
Forseti vill biðja hv. þm. að hafa hemil á þingskapaumræðu mitt í fyrirspurnatíma. Eins og hæstv. samgrh. tók væntanlega eftir þá hringdi forseti bjöllu þegar henni þótti aðeins farið út fyrir það sem verið var að leiðrétta. Hins vegar er forseti þeirrar skoðunar að það hafi verið nokkur ástæða fyrir hv. 5. þm. Vestf. að leiðrétta það sem fram kom í ræðu hæstv. ráðherra. Þess vegna tel ég að hér hafi ekki verið brotin þingsköp.