Atvinnuþróun í Mývatnssveit

107. fundur
Fimmtudaginn 11. febrúar 1993, kl. 13:53:47 (4997)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Þá fer fram atkvæðagreiðslan. Í þessu máli eins og hér hefur nú greinilega komið fram liggja fyrir tvær tillögur, annars vegar frá flm. og hins vegar frá hæstv. umhvrh. Þessi atkvæðagreiðsla fer þannig fram að fyrst verða greidd atkvæði um fyrri till. sem tilgreind var, þ.e. frá flm. málsins um að þessu máli verði vísað til umhvn., og nái sú tillaga ekki fram að ganga kemur hin tillagan til atkvæða.