Fjarvera heilbrigðisráðherra

107. fundur
Fimmtudaginn 11. febrúar 1993, kl. 14:16:52 (5001)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Forseti vill beina því til hv. þm. að þeir virði þau tímamörk sem ætluð eru í umræður, m.a. þegar menn kveðja sér hljóðs um gæslu þingskapa, og fari þá ekki mikið yfir þessar þrjár mínútur. Það er næstum tvöfaldur tími sem hv. þm. hefur tekið og það er orðið nokkuð mikið af hinu góða.