Halldór Ásgrímsson
:
Virðulegur forseti. Ég vildi beina orðum mínum til hæstv. fjmrh. Eins og öllum er kunnugt eru raunvextir mjög háir hér á landi og alveg ljóst að hið háa vaxtastig er farið að draga svo kraftinn úr atvinnulífinu að það getur ekki lengur staðið undir þeim og hefur svo verið lengi. Ég spyr hæstv. fjmrh. hvort ríkisstjórnin hyggist nú á næstunni lækka vexti á ríkisskuldabréfum til þess að greiða fyrir því að vextir lækki almennt hér á landi. Ég spyr hæstv. fjmrh. jafnframt að því hvort ríkisstjórnin sé tilbúin til að breyta þeim skattálögum sem lagðar voru á almenning fyrir áramótin til að greiða fyrir kjarasamningum nú á næstunni. Skattleysismörk voru lækkuð og eru nú um 57 þús. kr. og hafa lækkað í tíð núv. ríkisstjórnar um 6 þús. kr. Því er alveg ljóst að skattbyrðin hefur dreifst að verulegu leyti á lágtekjufólk í stað þess að fara að ráðum verkalýðshreyfingarinnar og dreifa henni frekar á þá sem meira mega sín. Að mínu mati er alveg ljóst að kjarasamningar munu vart nást nema ríkisstjórnin sé tilbúin til slíkra aðgerða og því mikilvægt að Alþingi og þjóðin fái svör við þessum tveimur mikilvægu spurningum.