Kjarasamningar

109. fundur
Þriðjudaginn 16. febrúar 1993, kl. 13:50:21 (5116)

     Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) :
    Virðulegi forseti. Meginstefnan í kjarasamningunum hlýtur að vera fyrir okkur rétt eins og aðilana á vinnumarkaðinum að tryggja það að stöðugleiki haldist og að tryggja það að við getum sem best staðið vörð gegn vaxandi atvinnuleysi. Ég skynja það svo af ályktunum, bæði Alþýðusambandsins og BSRB og annarra slíkra aðila, að fullur skilningur er hjá þessum aðilum að þetta er brýnasta verkefnið sem við er að eiga í kjarasamningunum sem eru fram undan.