Fjármálaráðherra (Friðrik Sophusson)
:
Virðulegi forseti. Eins og fram kom í máli mínu hér áður hafa engar ákvarðanir verið teknar um hækkun tryggingagjalds. Það eina sem ég sagði var að það hlýtur að verða í umræðunni þegar ljóst er að það gjald stendur engan veginn undir þeim kostnaði sem til stóð á sínum tíma að það stæði undir. Í öðru lagi kom fram í máli mínu og ég vona að það skipti öllu máli en það er að ríkissjóður mun nú eins og endranær sjá til þess að Atvinnuleysistryggingasjóður geti sinnt lögboðnu hlutverki sínu.