Forseti (Salome Þorkelsdóttir)
:
Áður en gengið er til dagskrár vill forseti tilkynna um utandagskrárumræðu sem fyrirhuguð er að lokinni afgreiðslu á þeim dagskrármálum sem hér liggja fyrir. Sú utandagskrárumræða fer fram að beiðni hv. 11. þm. Reykv. fyrir hönd stjórnarandstöðunnar og fjallar um heilbrigðismál.