Tilkynning um utandagskrárumræðu

117. fundur
Fimmtudaginn 25. febrúar 1993, kl. 11:49:27 (5420)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Áður en hv. þm. fær orðið vill forseti láta þess getið sem fórst fyrir í upphafi fundar að fyrirhuguð er hálftíma utandagskrárumræða um kl. 15.30. í dag. Umræðan fer fram að beiðni hv. 3. þm. Suðurl. og er um stöðvun Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs.