Ólafur Þ. Þórðarson :
Herra forseti. Fyrir fram ætla ég ekki að slá því föstu að allt í þessu frv. sé óalandi og óferjandi. Vel má vera að skynsamlegt sé að framkvæma eitthvað af þeim breytingum sem hér er lagt til. En grundvallaratriði í réttarfari er að allir séu jafnir fyrir lögum og því aðeins verða allir jafnir fyrir lögum að lögreglustjórarnir framkvæmi sitt starf á hliðstæðan hátt hver í sínu umdæmi. Ég verð því miður að segja að án mikils aðhalds held ég að það verði aldrei og gæti nefnt dæmi þar að lútandi sem undirstrika að þeir eru mjög mishæfir til að fara með það vald sem þeim er ætlað í þessum efnum.
Ég mun því í meðferð þessa máls í nefnd leita grannt eftir því hvernig hæstv. dómsmrh. hefur hugsað sér að tryggja það aðhald að treysta megi því að menn verði jafnir fyrir lögum og eigi það ekki undir því hvort þeir búa í þessu lögsagnarumdæmi eða hinu hver niðurstaðan er í hliðstæðum málum og að það sé í reynd jafnframt tryggt að hið mikla fámennissamfélag á Íslandi verði ekki til þess að kunningsskapur og fleira hafi afgerandi áhrif á það hvort menn fylgi málum eftir skammlaust og sá sem fyrir broti verður geti treyst því að afgreiðsla málsins verði með eðlilegum hætti. Ég vænti þess að hæstv. dómsmrh. geri sér grein fyrir því að í þessum efnum er veikleiki fólginn í því frv. sem hér er flutt. Styrkleiki þess liggur aftur á móti í því, eins og réttilega kom fram hjá hæstv. dómsmrh., að vonandi verður þetta í mörgum tilfellum til þess að tryggja þann hraða í afgreiðslu mála sem einnig er mjög mikils virði.