Forseti (Guðrún Helgadóttir)
:
Ég vona að það mál upplýsist hvernig á því stendur að hæstv. ráðherra var ekki kunnugt um umræðuna. Ég vil taka það skýrt fram að það var ekki skylda hv. frummælanda, hv. 3. þm. Suðurl., að annast það heldur er það venja. Tvímælalaust hefur þinginu einnig orðið á og ber að harma það en kannski ekki ástæða til að ræða það lengi hér.