Forseti (Salome Þorkelsdóttir)
:
Í raun og veru er sá tími liðinn sem þingsköp leyfa til andsvara en það hefur komið hér fram að forseta hefur yfirsést að hv. 8. þm. Reykn. bað um orðið um andsvör og er því ekki ljóst hvar í röðinni hann var. Þess vegna væntir forseti þess að það verði ekki tekið sem eitthvert fordæmi þó forseti fari aðeins út fyrir þingsköp núna og leyfi hv. 8. þm. Reykn. að veita andsvar.