Kaup á björgunarþyrlu

117. fundur
Fimmtudaginn 25. febrúar 1993, kl. 17:17:32 (5502)

     Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Það felst í mínu svari eins og hv. þm. veit mætavel að verði gengið til samninga um kaup á þyrlu eins og ég hef svarað að standi til af hálfu ríkisins án þess að það sé veitt fjármunum til þess á fjárlögum, þá eru menn með þeim hætti að notfæra sér þær heimildir sem þeir hafa til að binda ríkissjóð. Þetta veit þingmaðurinn sem er hæstv. fyrrv. fjmrh.