Jóna Valgerður Kristjánsdóttir
:
Virðulegi forseti. Sú breyting sem hér er verið að leggja til á sveitarstjórnarlögum kemur inn á það hvort lýðræðislegar kosningar eigi að gilda í hverju sveitarfélagi fyrir sig eða hvort það eigi að gilda í fjölda þeirra sveitarfélaga sem sameina á og þá á heildina litið. Það liggur í augum uppi að miðað við þá stöðu sem er í dag í sveitarstjórnarmálum þá hljótum við að líta svo á að hvert sveitarfélag sé svo sjálfstæð heild að það hafi ákvörðunarvald um það hvort það vill sameinast öðrum sveitarfélögum. Ég tel að sú breyting sem hér er verið að leggja til ítreki þann rétt sem hvert sveitarfélag hlýtur að hafa til að segja sitt álit og taka ákvörðun um hvernig það vill haga sínum málum í framtíðinni.
Nú vil ég taka það fram að ég er mjög sammála því að unnið sé að sameiningu sveitarfélaga og tel að það sé þróun sem hljóti að halda áfram. Hún hefur verið fremur hæg undanfarin ár og má ýmsu um það kenna, m.a. líka því að sveitarstjórnarmenn hafa sjálfir e.t.v. verið of tregir til að ræða sameiningu og ekki séð í fljótu bragði hvaða hagnaði sú sameining mundi skila þeim. En þessi umræða verður að fara fram í sveitarfélögunum miðað við þá stöðu sem er í dag. Ég tel að í framhaldi af þeirri umræðu, kynningu á kostum og göllum sameiningar, sé það sjálfsagt mál að hvert sveitarfélag geti síðan tekið ákvörðun fyrir sig. Þannig er stjórnsýslan í dag og við getum ekki breytt því að í dag hefur hvert sveitarfélag ákvörðunarvald um sína framtíð. Þessi breyting sem hér er lögð til hnykkir á því að þau hafi það vald. Að öðru leyti vænti ég þess að það verði árangur af starfi þeirrar nefndar sem hefur verið að vinna að sameiningu sveitarfélaga. Ég vil einnig benda á að fulltrúaráðsfundurinn í Keflavík núna fyrir helgina ræddi mjög sameiningu sveitarfélaga og gerði ályktanir í þá veru. M.a. er sú ályktun sem þar var gerð um kosningu um sameiningu sveitarfélaga í hverju sveitarfélagi fyrir sig einmitt í sömu veru sem þetta frv. til laga gerir ráð fyrir. Ég tel að það sé það sem meiri hluti sveitarstjórnarmanna vill í dag. Til þess eigum við að taka tillit.