Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
Forseti vill benda hv. þm. á að hann hefur talað tvisvar hann þarf því að fresta ræðu sinni. ( ÓÞÞ: Þetta var andsvar, ég bað um andsvar.) Nú, leit þingmaðurinn svo á að hann væri að veita andsvar? ( ÓÞÞ: Ég bað um andsvar.) Hvort tveggja væri til, en forseti skal virða það. Forseti tók það nú svo og kynnti ræðu hv. þm. á þann veg að hann væri að taka til máls. Ég hygg þess vegna að frá því verði varla vikist og vil ég því biðja hv. þm. um að fresta ræðu sinni og mun hann því halda henni áfram þegar umræða hefst að nýju.