Jóhannes Geir Sigurgeirsson
:
Virðulegi forseti. Þar sem ég á sæti í hv. landbn. og hef þar tækifæri til þess að fjalla um þetta mál þá sé ég ekki ástæðu til að hafa um það langa ræðu en get þó fullvissað hæstv. ráðherra um að hann þarf ekki að hafa áhyggjur af því að sú nefnd muni ekki taka á þessu máli á málefnalegan hátt eins og öllum þeim málum sem þangað er vísað. Ég átta mig eiginlega ekki alveg á því hvers vegna hæstv. ráðherra taldi ástæðu til að taka þetta sérstaklega fram undir lok sinnar framsögu.
Almennt um stöðu Áburðarverksmiðjunnar get ég tekið undir með ráðherra að það er mjög mikilvægt að menn hyggi að framtíð þessa fyrirtækis og því betur hefur verið unnið þar mjög gott starf á síðustu árum. Áburðarverksmiðjan er tæknilega orðin mjög vel uppbyggð og fjárhagsstaðan er góð sem hefur leitt af sér að hlutfallslega hefur áburðarverð farið lækkandi á síðustu árum og það ber að þakka.
Ég vil reyndar ekki trúa öðru en því að það takist að búa þannig um hnútana að við getum haldið áfram áburðarframleiðslu innan lands. Til þess að menn átti sig á því hvað áburðarverð vigtar í innlendri búvöruframleiðslu og innlendri matvælaframleiðslu þannig að menn séu ekkert að ofgera þar varðandi hvað menn geti sparað, þá er mjög algengt í mjólkurframleiðslu að áburðarverð sé u.þ.b. 10% og hefur á síðustu árum verið innan við 10% af heildarveltu búanna. Þegar við athugum síðan hvað innlenda matvaran vigtar í framfærsluvísitölunni, sem er eitthvað rúmlega 10%, sjáum við að þarna er ekki um að ræða hluti sem velta þungum hlössum í framfærsluvísitölunni innan lands. Ég er þó ekki með þessu að draga neitt úr því að það beri að stuðla að því að lækka aðföng og það verður að gera í áburðarframleiðslunni líka.
Sú spurning verður áleitin varðandi Áburðarverksmiðjuna og áburðarframleiðsluna í landinu hvort ekki mætti hugsa sér að lækka verðið og bjóða þannig upp á ódýrari áburð. Ég er sannfærður um að það mundi örva viðskipti við verksmiðjuna. Landbúnaður á Íslandi byggir á grasframleiðslu og bændur hafa á síðustu árum verið að ná tökum á því að nýta stöðugt meira og meira innlent fóður í framleiðslu sinni. Til þess að sú þróun geti haldið áfram og við getum sótt fram áfram á kostnað innflutts kornfóðurs, þá þurfa bændur í landinu að hafa aðgang að ódýrum áburði. Ég velti þessu upp í þessari umræðu.
Að lokum, virðulegi forseti, þá ætla ég ekki að taka neina afstöðu hér til þess meginákvæðis frv. að breyta Áburðarverksmiðjunni í hlutafélag. Mér sýnist hins vegar ekki miklar líkur á því á næstunni að aðrir aðilar en ríkið sýni áhuga á þessu fyrirtæki. Í það minnsta ekki eins og hæstv. landbrh. hefur lýst stöðu þessa fyrirtækis þegar hann hefur rætt um það fram að því að hann flutti þessa ræðu núna. Mér finnst þar kveða við eilítið annan tón. Áður hefur maður heyrt hæstv. ráðherra tala um það sem nánast gefinn hlut að áburðarframleiðsla hér muni líða undir lok á allra næstu árum.