Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. forsrh. fyrir svar hans. Það er satt að segja nokkuð einkennilegt að þetta skuli koma talsmönnum EFTA-ríkjanna og forustumönnum í EFTA-ríkjunum svona í opna skjöldu, þessi viðbrögð Spánverja, því ég hef talið að þarna gæti verið um gagnkvæm áhrif að ræða og mætti búast við einmitt að Maastricht-málin innan Evrópubandalagsins gætu haft áhrif á þessa afgreiðslu. Ástæðan fyrir því að ég er að hvetja hæstv. forsrh. til að endurskoða gang ríkisstjórnar sinnar varðandi Evrópskt efnahagssvæði er einmitt að reynslan, sem hann og aðrir sem hafa haft áhuga á því að tengja Ísland inn í þetta samstarf, í Evrópska efnahagssvæðið, ætti að vera farin að sýna mönnum í hvaða samkvæmi er verið að halda því þetta eru ekki nein lok á samskiptum við Spánarstjórn eða aðra í Evrópubandalaginu. Þar verða menn í stöðugu samningaþófi við Evrópubandalagsríkin um áframhaldandi löggjöf og í aðstæðum eins og menn hafa verið að reyna hér. Þannig að ég ítreka hvatningu mína til ríkisstjórnarinnar að draga sig út úr þessu samkvæmi.
Afstaða Spánar til EES-samningsins
124. fundur
Þriðjudaginn 09. mars 1993, kl. 13:53:59 (5788)
Hjörleifur Guttormsson
: