Dragnótaveiðar á Faxaflóa

126. fundur
Fimmtudaginn 11. mars 1993, kl. 10:51:44 (5878)

     Forseti (Gunnlaugur Stefánsson) :
    Ég verð að minna hv. þm. á að þeir hafa eina mínútu til að gera stutta athugasemd utan ráðherra er svarar og fyrirspyrjanda og fer fram á að þeir haldi sig innan tímamarka. Ég vil vekja athygli hv. þm. á því að í ræðupúltinu er ljós. Það kemur gult ljós nokkru áður en tíminn er liðinn. Ég bið hv. þm. um að veita þessu ljósi athygli og gott að fylgja því á stundum.