Endurskoðun laga um mannanöfn

126. fundur
Fimmtudaginn 11. mars 1993, kl. 11:07:22 (5887)


     Fyrirspyrjandi (Hjálmar Jónsson) :
    Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. dóms- og kirkjumrh. fyrir svörin og þakka umræðuna. Ég fagna því að nú á að hefja endurskoðun laganna og tel nauðsynlegt að lögin séu túlkuð rúmt. Eins og áður sagði eru nafnalögin skýr og býsna afdráttarlaus, en þau þarf að túlka með umburðarlyndi og mildi. Ég þakka umræðuna.