Fjármálaráðherra (Friðrik Sophusson)
(andsvar)
:
Hæstv. forseti. Við höfum þegar fyrr í þessum mánuði rætt þetta mál mjög ítarlega. Ég vil fyrsta segja það að ég tel mig vera að beita mér fyrir sáttum þegar ljóst er að ríkisreikningsnefnd er að fjalla um þessi mál öll og í þeirri nefnd eiga sæti m.a. fulltrúar Ríkisendurskoðunar og ég er að vonast til þess að niðurstaðan verði þannig að allir geti við unað.
Varðandi þetta eina mál, um 4 milljarðana og færsluna á þeim í fjárlögum yfirstandandi árs, en þau fjárlög eru að sjálfsögðu ekki hér til umræðu, þá vil ég segja það að hér er um bráðabirgðatilhögun að ræða til eins árs. Það hefði gefið ranga mynd af málinu að færa þetta upp til fulls sem skatttekjur ríkisins og síðan aftur sem skatttekjur sveitarfélaganna. Þetta gerist samkvæmt breytingu sem samþykkt var á tekjustofnalögunum og útdeilingin fer samkvæmt áætlaðri álagningu aðstöðugjalds, greiðist af staðgreiðslufé sem aldrei rennur í ríkissjóð, sem aldrei hefur viðkomu í ríkissjóði. Eftir miklar bollaleggingar varð niðurstaðan sú að færa þetta með þessum hætti og var haft samráð við fjárveitinganefnd um það og meiri hlutinn flutti þá tillögu eins og allir vita og hún var samþykkt hér sem tekjuniðurstaða í fjárlögunum. Þetta er skýring mín á málinu. Um það hefur verið fjallað hér áður en ég vona að þetta svar skýri kannski fyrir einhverjum enn betur hver afstaða ráðuneytisins er.