Fjármálaráðherra (Friðrik Sophusson)
(andsvar)
:
Virðulegi forseti. Þetta hefur verið nokkuð þvælt hér, en hv. þm. beitir nú þeim rökum að þessir fjármunir renni í ríkissjóð einhvern tiltekinn tíma eða með öðrum orðum að farið sé með þessa fjármuni eins og staðgreiðsluféð sem rennur til sveitarfélaganna og kallast útsvar en er heimt inn ásamt tekjuskattinum. Mér finnst þetta ekki góð rök hjá hv. þm. vegna þess að honum er það ljóst jafn vel og mér og öllum öðrum þingmönnum að staðgreiðsluféð, þ.e. útsvarið sem er heimt inn með tekjuskattinum, þótt það staldri einhverja daga í ríkissjóði, þá eru þeir fjármunir aldrei taldir til tekna ríkissjóðs. Það er farið nákvæmlega eins með þessa peninga og þá fjármuni sem hér er verið að greiða út.
Á bls. 263 í fjárlagafrv. er sagt að staðgreiðslan öll, þ.e. ef allt væri innheimt, þá fengjust 82,3 milljarðar af staðgreiðslunni ef engir afslættir og frádrættir væru fyrir hendi. Nú er það ljóst að þeir eru verulegir, fyrst náttúrlega persónuafsláttur, þá sjómannaafsláttur, síðan útsvar sveitarfélaga sem er 14,1 milljarður. Ef við ætluðum að fara þessa aðferð sem hv. þm. er að benda á, þá hefðum við þurft að bæta 14,1 milljarði við tekjuskattinn og tekjur ríkisins og borga síðan sveitarfélögunum til baka með þeim hætti sem hann er að stinga upp á. Það dettur auðvitað ekki nokkrum manni í hug.
Ég endurtek: Það er auðvitað umdeilanlegt hvernig farið er með þessar færslur. Undir það skal ég taka en það er ekkert óeðlilegt og það er engan verið að blekkja og ég held að flestallir séu farnir að skilja út á hvað þetta gengur.