Pálmi Jónsson
:
Virðulegi forseti. Vegna þeirra orða sem hér hafa fallið tel ég það sjálfsagt og eðlilegt að hið fyrsta verði tekinn hér til umræðu ríkisreikningurinn fyrir árið 1991 og það segir sig sjálft að í tengslum við þá umræðu verður rædd skýrsla Ríkisendurskoðunar og skýrsla yfirskoðunarmanna ríkisreiknings fyrir það ár. Þar með koma þessi mál formlega til þingsins.