Breyting á dagskrá

129. fundur
Þriðjudaginn 16. mars 1993, kl. 14:08:49 (6079)

     Jóhannes Geir Sigurgeirsson :
    Virðulegi forseti. Það sem knýr mig til að ræða hér um gæslu þingskapa er sú breyting sem hér hefur orðið á dagskrá þessa fundar. Samkvæmt drögum að dagskrá Alþingis fyrir þessa viku sem við þingmenn fengum í hendur fyrir helgi og samkvæmt dagskrá sem hér lá fyrir í morgun mátti ætla að það mál sem yrði þungamiðja umræðunnar í dag yrði seðlabankalögin. Nú hefur það mál verið tekin af dagskrá í dag og sú eina skýring gefin að það verði ríkisstjórnarfundur kl. 4 í dag. Ég spyr því virðulegan forseta: Síðan hvenær er hæstv. ríkisstjórn farin að stýra fundum á þennan hátt? Og ég spyr einnig hæstv. viðskrh. hvort það sé að kröfu ríkisstjórnarinnar að það mál sem hér átti að vera á dagskrá, seðlabankafrv., sé ekki tekið fyrir. Þetta segi ég, virðulegi forseti, kannski fyrst og fremst vegna þess að í fyrsta skipti var beitt því ákvæði þingskapa að fresta umræðu og fara fram á að mál yrði tekið fyrir í viðkomandi nefnd áður en 1. umr. yrði fram haldið. Þá lá svo mikið á að sá fundur var knúinn í gegn án þess að forvígismaður þess að fá málinu frestað gæti verið þar og þá hélt maður að það væri vegna þess að það lægi á því að taka málið fyrir hér á í þinginu. Þetta er mjög bagalegt fyrir okkur þingmenn sem erum að reyna að skipuleggja tíma okkar út frá því sem við teljum að dagskráin bjóði upp á. Sá sem hér stendur hafði til að mynda notað þann tíma sem gafst til undirbúnings í gær og í dag fyrir þingfund í dag fyrir seðlabankafrv.
    Ég spyr því, virðulegi forseti, um nánari skýringar á því hvers vegna á þennan hátt er hér brugðið út af dagskrá.