Jóhannes Geir Sigurgeirsson
:
Virðulegi forseti. Ég vil þakka fyrirspyrjanda að bera þessa fsp. fram og treysti því að hæstv. félmrh. geri það sem í hans valdi stendur til þess að hægt verði að viðhalda þeirri starfsemi sem hefur farið fram samkvæmt því sem hér er til umræðu. Ég hef átt þess kost núna um á annars árs skeið að fylgjast einmitt með starfsemi sem þessari hjá stuðningsfjölskyldu og í gegnum það áttað mig mjög vel á því hvað þetta er mikilvægt og ég vil leyfa mér að segja hagkvæmt fyrir ríkisvaldið að viðhalda þessari starfsemi. Þessi starfsemi hefur ekki verið hátt launuð og því er allt það sem skerðir kjör þeirra sem að þessu vinna afar óæskilegt. Hún hefur ekki verið hátt launuð en ég tel hins vegar að þessi starfsemi sé á margan hátt gefandi fyrir þá sem taka þessi verkefni að sér. Ég vil því taka mjög ákveðið undir það með fyrirspyrjanda að það sé mjög áríðandi að þannig sé staðið að málum að hægt verði að halda þessari þjónustu við.