Jóna Valgerður Kristjánsdóttir
:
Virðulegi forseti. Ég tók eftir því þegar hæstv. félmrh. las upp þau sveitarfélög sem hafa haft yfir 80% af innheimtuhlutfalli af aðstöðugjöldum að þar var mjög mikið af fámennum sveitarfélögum sem hafa þar af leiðandi ekki miklar tekjur af útsvörum og fasteignagjöldum. Nú á að skerða tekjur þeirra með þessum breytingum á aðstöðugjaldinu.
Einnig má minna á það í sambandi við það áhugamál sem hæstv. ráðherra og raunar fleiri hafa lýst, þ.e. að sameina sveitarfélög, að þá hafa fámennustu hrepparnir þar heldur dregið úr og ekki verið áfjáðir í sameiningu. Ég er sannfærð um það að ef þetta atriði verður ekki bætt mun það enn þá frekar draga úr því að til sameiningar sveitarfélaga komi.