Eiginfjárstaða innlánsstofnana

134. fundur
Föstudaginn 19. mars 1993, kl. 12:05:51 (6257)


     Halldór Ásgrímsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég vildi aðeins þakka hæstv. viðskrh. fyrir þessi svör. Ég tel þau fullnægjandi og staðfesta það sem segir í nál. meiri hlutans og tel hér hafa komið fram viljayfirlýsingu hæstv. viðskrh. að standa við það af sinni hálfu sem þar stendur.