Meðferðarheimilið á Staðarfelli

137. fundur
Þriðjudaginn 23. mars 1993, kl. 13:35:34 (6347)

     Sturla Böðvarsson :
    Virðulegi forseti. Við undirbúning fjárlaga sl. haust var gerð grein fyrir því í fjárln. að náðst hefði samkomulag milli heilbrrh. og Samtaka áhugamanna um áfengisvarnir, sem reka m.a. meðferðarheimili á

Staðarfelli, að ekki yrði gerð breyting á rekstri þeirra meðferðarstofnana sem samtökin hafa á sínum herðum, m.a. með tiltekinni breytingu á fyrirhugaðri fjárveitingu. Nú vil ég spyrja hæstv. heilbr.- og trmrh. hvað sé á ferðinni þegar heyrist í fréttum nú á hádegi að SÁÁ hafi tekið ákvörðun um að segja öllu starfsfólki á Staðarfelli upp og hvort hæstv. ráðherra geti gefið upplýsingar um hvað hafi breyst síðan þetta samkomulag var gert.