Meðferðarheimilið á Staðarfelli

137. fundur
Þriðjudaginn 23. mars 1993, kl. 13:39:52 (6349)

     Sturla Böðvarsson :
    Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. heilbrrh. fyrir þær upplýsingar sem hann gefur hér um þann samning sem gerður var við SÁÁ. Ég vænti þess að ráðuneytið geri allt sem í þess valdi stendur til þess að báðir aðilar standi við samninginn og að unnið verði að lausn málsins því að það er auðvitað allsendis óviðunandi að ekki sé staðið við þá samninga sem þarna voru gerðir og að fólkið sem starfar á Staðarfelli megi búa við þá óvissu um störf þarna við heimilið eins og nú virðist vera þegar SÁÁ hefur hugsað sér að segja öllu þessu fólki upp þrátt fyrir þær skyldur sem SÁÁ hefur undirgengist með samningnum. Ég legg á það áherslu að ráðuneytið finni lausn á málinu þannig að viðunandi sé.