Meðferðarheimilið á Staðarfelli

137. fundur
Þriðjudaginn 23. mars 1993, kl. 13:41:08 (6350)

     Heilbrigðisráðherra (Sighvatur Björgvinsson) :
    Virðulegi forseti. Ég vil aðeins að það komi fram að ekkert samband eða samráð hefur verið haft við heilbrrn. um þá ákvörðum, ef sú ákvörðun hefur verið tekin, að loka Staðarfelli. Ég mun hið fyrsta gera ráðstafanir til þess að fá upplýsingar frá forráðamönnum SÁÁ um málið, en ég reikna að sjálfsögðu fyllilega með því eins og fyrirspyrjandi að báðir aðilar standi við samninginn sem gerður var 8. des. sl.