Seðlabanki Íslands

140. fundur
Þriðjudaginn 23. mars 1993, kl. 18:48:48 (6396)


     Forseti (Gunnlaugur Stefánsson) :
    Varðandi ósk hv. 1. þm. Norðurl. v. þess efnis að hv. 1. þm. Austurl. fái tækifæri til þess að flytja ræðu við 1. umr. málsins, sem hér er á dagskrá, þá sér forseti ekki að hv. 1. þm. Austurl. sé á mælendaskrá og hann hefur ekki óskað eftir því að taka til máls þegar þetta mál hefur áður verið á dagskrá. Ég skildi hv. 1. þm. Norðurl. v. svo að hann gengi út frá því að hv. 1. þm. Austurl. væri á mælendaskrá. En vegna orða hans þá held ég að við þurfum ekki að ræða það úr stóli heldur getum talað um það saman.