Ólafur Þ. Þórðarson
(andsvar)
:
Herra forseti. Fyrst er til að taka að hér var ekki á dagskrá hvaða reglur gilda um aðild að Norðurlandaráði og ekki heldur hvaða tungumál Páll Pétursson talar á þeim þingum. ( Utanrrh.: . . . afsala sér íslenskunni að þínum skilningi?) Hér var um það rætt að hæstv. utanrrh. var búinn að skýra frá því mjög skilmerkilega að miðað við það málsvæði sem við tilheyrðum væri svo mikil andstaða við því að hleypa okkur inn í EB að það yrði aldrei gert. Þetta var hann var að fræða okkur um hér úr stólnum. Þá er engin önnur lausn fyrir þá sem vilja fara inn en að breyta um málsvæði. Annars komast menn það ekki. Þetta hlýtur hæstv. utanrrh. að skilja. Þetta er svo einfalt mál. Ef fjallið vill ekki koma til Múhammeðs verður Múhammeð að koma til fjallsins. Þetta veit að sjálfsögðu hv. þm. Karl Steinar Guðnason. Um það þarf ekki að deila. Ef þeim stendur slík ógn að þýða þetta allt á íslensku eins og hér hefur komið fram þá verðum við náttúrlega að una því að það verði þýtt á dönsku eða ensku ef menn ætla þarna inn og taka ákvörðun um það að fórna þeim þætti.
Ég vona að hæstv. ráðherra geri sér grein fyrir því að hann hefur ekki enn svarað spurningunni með uppfræðsluna á hv. þm. Karli Steinari Guðnasyni. Nú var þetta ekki á víðtæku sviði sem spurt var um þá fræðslu sem hæstv. utanrrh. hefði veitt þingmanninum í þessum efnum heldur á mjög takmörkuðu sviði og svarið hefur ekki borist enn.