Frsm. meiri hluta sjútvn. (Össur Skarphéðinsson)
(andsvar)
:
Virðulegi forseti. Ég biðst afsökunar á ókurteisi minni og ráðríki hér áðan. Mér finnst gæta mikils misræmis í málflutningi hv. þm. Jóhanns Ársælssonar. Hann talar um að það megi ekki bjóða heim óvissu varðandi Síldarverksmiðju ríkisins. Það er auðvitað mála sannast að framtíð þess fyrirtækis í núverandi rekstri er í mikilli óvissu og það er einmitt tilgangur þessa frv. að koma í veg fyrir að sú óvissa haldi áfram og eyða henni. Hann talaði um það að verksmiðjan hefði sýnt að hún gæti verið í góðum rekstri. Mig minnir að hv. þm. sé í stjórn verksmiðjunnar. Það kemur fram samkvæmt rekstraráætlun verksmiðjunnar að miðað við meðalár nægir framlag úr rekstri til afskrifta og fjármagnskostnaðar ekki til þess að standa undir langtímaskuldbindingum. Þetta eru staðreyndir sem liggja fyrir.
Hvað varðar síðan einstakar óskir sem ég eða einhver annar kann að hafa um framtíðarskipulag verksmiðjanna, þá finnst mér að það komi þessu máli í rauninni ekkert við. Ég er þeirrar skoðunar að framtíð verksmiðjanna sé best tryggð með því að setja þær yfir á form hlutafélaga og það hlutafélag sem til verður í framhaldi af þessu frv. standi á jafnréttis- og jafnræðisgrundvelli samanborið við önnur svipuð fyrirtæki. Það verður einungis gert með því að leggja engar slíkar kvaðir á fyrirtæki, enda kemur það fram í tillögum hv. minni hluta sjútvn. að það er einungis gert að tillögu frá þeim að hafa þær kvaðir mjög tímabundið og ég sé ekki að það skipti mjög miklu máli. Ég held hins vegar að forsendur arðs og rekstrar muni knýja þá sem eignast þessa verksmiðju í tímans rás til þess að halda þeim öllum saman vegna þess að það er rekstrarleg skynsemd sem felst í því.