Staðsetning björgunarþyrlu

147. fundur
Þriðjudaginn 30. mars 1993, kl. 17:13:01 (6581)

     Jóhannes Geir Sigurgeirsson :
    Virðulegi forseti. Ég vil lýsa yfir stuðningi mínum við efni þessarar tillögu og tel nauðsynlegt í framhaldi af því að keypt verði ný þyrla að staðsetningarmál þyrlna verði skoðuð. Ég vil einnig að sú skoðun mín komi skýrt fram að ég held að við megum ekki horfa í peninginn. Þó ég sé ekki að tala um nein ótakmörkuð fjárútlát megum við ekki horfa í peninginn þegar kemur að vörslu öryggis sjómanna okkar. Ég tel reyndar ekki vansalaust hvað það hefur dregist lengi að koma því í betra horf að við eignumst góða þyrlu með fullkomnasta búnaði til þess að sinna slíku.
    Varðandi þessi staðsetningarmál er það rétt að ný þyrla getur farið bæði hraðar yfir og í gegnum miklu verri veður en sú sem við höfum núna. Það breytir ekki því að staðsetning getur skipt verulegu máli og mér finnst að sá staður sem helst kæmi til greina sem annar staður fyrir þyrlu hér á landi sé nýi flugvöllurinn á Egilsstöðum sem gæfi mjög góðan radíus yfir Norðurausturlandið og hafið norðaustur af okkur.
    En það sem var aðalástæðan fyrir að ég kom hér upp er að ég held að þrátt fyrir að bráðnauðsynlegt sé að gengið verði í það strax að kaupa nýja þyrlu, þá þurfi einnig að horfa til þessara mála til lengri framtíðar. Ég minni á að hv. 1. flm. þessarar þáltill. flutti um það tillögu fyrir nokkrum þingum að það yrði kannað að koma upp alþjóðlegri björgunarsveit á Íslandi. Ég get tekið mjög undir þá skoðun og varpa því fram sem minni skoðun til áréttingar á þessu hvort við Íslendingar eigum ekki að bjóðast til að taka að okkur að reka alþjóðlega björgunarsveit fyrir flugumsjónarsvæði okkar, að svo miklu leyti sem það þykir hagkvæmt. Við eigum mjög vel menntað fólk á þessu sviði, hvort sem er tæknisviðið eða flugmenn, sem að vísu þyrfti að þjálfa upp á nýtt til að taka við þyrluflugi.
    Öllum er ljóst að það eru miklar breytingar á öryggiskerfinu í heiminum þó ég tengi þetta ekki beint saman. Það er einnig ljóst að það er hagsmunamál miklu fleiri aðila en okkar Íslendinga að mjög vel sé staðið að björgunarmálum á hafinu umhverfis Ísland. Ég nefni að hér er mjög fjölfarin siglingarleið. Þetta er viðkomustaður í ferjuflugi milli heimsálfa. Mér finnst að það þyrfti að kanna hvort nágrannaþjóðir, sem eiga hagsmuna að gæta, og alþjóðastofnanir á sviði flugmála og siglingamála, mundu vilja leggja þessu máli lið með okkur og finna í því sameiginlega hagsmuni. Hvort og hvenær þetta tengdist síðan breytingum í hinu almenna öryggisgæslukerfi í heiminum væri kannski frekar seinni tíma mál.
    Þetta vildi ég, virðulegi forseti, koma með í umræðuna, sem ég veit reyndar að hefur verið gert áður, en ég tel að margt í okkar umhverfi í dag sé þess eðlis að það sé sjálfsagt að skoða þessa hluti í þessu samhengi.
    Hvort slík sveit tengdist og að hve miklu leyti hún tengdist okkar Landhelgisgæslu og vörslu þess hafsvæðis sem við ráðum yfir í dag og komum til með að ráða yfir þegar tillögur hv. 4. þm. Reykv. fá meiri hljómgrunn verður tíminn að leiða í ljós.