Ábyrgðir á lífeyrisgreiðslum Sambandsins

148. fundur
Miðvikudaginn 31. mars 1993, kl. 15:29:13 (6613)

     Forseti (Pálmi Jónsson) :
    Forseti vill fyrst geta þess að ekki er að finna ákvæði í þingsköpum sem banna andsvör í umræðum utan dagskrár. Þau munu hins vegar ekki hafa tíðkast.
    Í annan stað vill forseti minna á að samkomulag er um að ljúka þessari umræðu um klukkan fjögur. Þrír hv. þm. eru enn á mælendaskrá og auk þess verður að ætla rúm fyrir málshefjanda og hæstv. fjmrh. ef þessir þingmenn óska og bið ég hv. ræðumenn að taka mið af því.