Héraðsskólar

149. fundur
Fimmtudaginn 01. apríl 1993, kl. 12:12:08 (6672)

     Fyrirspyrjandi (Jörgína Jónsdóttir) :
    Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. menntmrh. greinargóð svör og upplýsingar. Jafnframt þakka ég þær umræður sem hér hafa átt sér stað um málefni þetta og vænti þess að unnið verði að öflugri uppbyggingu skólastarfs um allt land, jafnt í þéttbýli sem dreifbýli.